Á sýningunni Viðhald 2010 mun fjöldi fyrirtækja og opinberra aðila gefa upplýsingar um allt sem lýtur að viðhaldsmálum. Komdu og fáðu upplýsingar um allt sem þú þarft að vita um viðgerðir og endurbætur.
Um Viðhald 2010

Viðhald 2010 verður löngu tímabært upplýsingatorg fyrir húseigendur. Sýningin hefst í dag í Vetrargarðinum kl. 16.00.

Á opinni sýningu um viðhaldsmál gefst einstakt tækifæri til þess að undirbúa endurbætur vorsins.

Föstudaginn 5. mars og laugardaginn 6. mars stendur sýningin Viðhald 2010 yfir í Vetrargarðinum í Smáralind. Sýningin er hugsuð út frá þörfum húseigenda sem vilja nálgast viðhald eigna sinna á faglegan máta. Þar verða veitt svör við spurningum um flest það sem lýtur að viðhaldsmálum. Fjölda fagmanna er nú í óða önn að koma sér fyrir á sýningarsvæðinu og gera klárt áður en herlegheitin byrja kl. 16.00 í dag, föstudag.

Þau voru ófá handtökin í Vetrargarðinum í dag þegar lokahönd var lögð á sýningarsvæðið. Sýningin er opin laugardaginn 6. mars frá 11 - 17.

Húseigendur ættu að spyrja sig:

  • Þarf ég að fara í framkvæmdir?
  • Hver greinir vandann?
  • Hvaða rétt á ég?
  • Hvaða skyldur hvíla á mér?
  • Hvernig fjármagna ég verkið?
  • Þarf samþykki húsfélags?
  • Hvar fæ ég tilboð?
  • Hver vinnur verkið?
  • Hvaða efni á að nota?
  • Hvaða tæki á að leigja eða kaupa?
  • Hver hefur eftirlit og hver ber ábyrgð?

Við þessum spurningum öllum, og ótal fleiri, er hægt að fá svör við hjá einherjum þeirra mörgun ráðgjafa og fagmanna sem verða  sýningunni Viðhald 2010.

Nokkrir heppnir sýningargestir snúa ekki tómhentir heim. Múrbúðin sér til þess.

Múrbúðin er aðalstyrktaraðili sýningarinnar Viðhald 2010 og verða starfsmenn hennar áberandi á sýningarsvæðinu. Gestir eru hvattir til þess að koma við á sýningarsvæði Múrbúðarinnar því þar verður hægt að taka þátt í laufléttri getraun. Heppnir þátttakendur verða dregnir út og það eru margir kræsilegir vinningar í boði, meðal annars úttektir í Múrbúðinni og ferðavinningur til einhvers af áfangastöðum Iceland express. Einnig verður fjölmargt skemmtilegt á seyði í öðrum sýningarbásum og ýmiss ávinningur fyrir gesti að koma og sjá dýrðina annar en sá að fá upplýsingar og ráðgjöf fagmanna. Sjón er sögu ríkari.

 

Almennt um sýninguna Viðhald 2010

Sýningin VIÐHALD 2010 verður haldin dagana 5. - 6. mars næstkomandi  í Vetrargarðinum í Smáralind.  Sýningin verður stórglæsilegt upplýsingatorg þar sem einstaklingar, húsfélög og húseigendur fá svör við spurningum um allt það sem lýtur að viðhaldsmálum. Fjöldi fyrirtækja og opinberra aðila munu gefa upplýsingar sem reynast heldur betur gagnlegar fyrir húseigendur sem stefna að endurbótum og/eða viðahaldi á næstu mánuðum.


Núna er rétti tíminn fyrir viðhaldið. Láttu fagmenn sjá um verkið.
– 100% endurgreiðsla vsk

Í mars síðastliðnum voru samþykkt ný lög á Alþingi um hækkað hlutfall á endurgreiðslu virðisaukaskatts. Frá 1. mars síðastliðnum og út árið 2010 fá eigendur íbúðar- og frístundahúsnæðis (sumarbústaða) 100% endurgreiðslu á vsk. sem þeir hafa greitt af vinnu manna við endurbætur eða viðhald þess.
Nú er því heldur betur rétti tíminn til þess að láta hendur standa fram úr ermum.
 

Sýningin hefst föstudaginn 5. mars og stendur þann daginn frá kl 16  -19 og  frá kl. 11 – 17, laugardaginn 6. mars.

 

Enginn aðgangseyrir fyrir sýningargesti - allir velkomnir!

  

 

 

 



Um Viðhald 2010
Skráning á Viðhald 2010
Sýningarsvæðið
Hafðu samband
Hverjir eru með?
Myndir